Það er ekki ástin heldur
afbrýðissemin sem vill fyrir hvern mun vita allt.
hverju orði sannara, ekki rétt... Frithiof Brandt



<< November 2009 >>
Sun Mon Tue Wed Thu Fri Sat
01 02 03 04 05 06 07
08 09 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30


If you want to be updated on this weblog Enter your email here:



rss feed


Tuesday, November 21, 2006
Hver vissi þetta ekki?

Karlar þegar þeir eru veikir =O)

Ég fékk mér bleikan ís í frostinu...
Doritos snakk og heit ostasalsaídýfa er í tísku núna...
Málaði piparkökur í gærkvöldi með stubbunum mínum...
Ég er snillingur...
Svaf illla í nótt...
Samloka í bakaríinu á eftir...
Verkefnatörn í tjáningu byrjar kl. 1500, úff...
Ætla að leggja mig á eftir...
Er að fara á villibráðahlaðborð að Smyrla í desember, slef...
Hlakka til að fara til Reykjavíkur með mömmsu =O)

Knús ***




Posted at 10:51 by liljurosin
Comments (5)  

Friday, November 17, 2006
Sá besti af þeim stuttu =)

A three year old was examining his testicles while he was taking a bath.

"Mom," he asked, "Are these my brains?"

Mother replied: "Not yet
."

Góða helgi krúttin mín,
það er víst að koma helgi!!
hjá mér er bara fimmtudagur..
týndi einum degi í hæsi og veikindi
greinilega... =O)

Knús frá litlu lipurtánni ***

e.s. nú skeit Ingvar Helgason upp á bak
með nýju auglýsingunni sinni - jólalag með
nýjum texta úr þeirra hugmyndabanka...
ekki að gera sig, því miður Ingvar minn.


Posted at 10:17 by liljurosin
Make a comment  

Thursday, November 16, 2006
Þvílíkt veður

Það er nú bara eins og andskotanum sjálfum hafi verið sleppt út... hér er búið að vera þvílíka rokrassgatið - ég á bara ekki til orð. Það var alltaf blíða síðasta vetur - í minningunni allavega =) en án gríns þá var nánast hægt að bruna til Reykjavíkur hvaða dag sem var eða austur á firði.

Nú er búin að vera norðanátt í heila viku svei mér þá, núna eru einhverjar hvítar flygsur með kára - ég fór í skíðabuxurnar mínar í morgun og ætla ekki úr þeim í dag - enda er mér hlýtt - já alveg satt. Skíðabuxur - skíðasokkar upp að hnjám - gönguskór - lopapeysa - vindjakki - ullarsjal - lúffur - hvað getur klikkað - ekkert hehe. Til í Almannaskarðið hvenær sem er =O)
Það er nú ekkert smá næs að bora sig undir sæng  með góða bók í svona blíðu hummm, ja ikke.

Annars hafði ég það af að klára bókina Mölbrotinn eftir James Frey, rosaleg bók og hann er snillingur þessi drengur. Hrifin af hugmyndum hans um drykkjusýki og hvernig eigi að vinna að því að sleppa takinu á flöskunni og öllu hinu dópinu sem hann setti í líkama sinn. Held ég hafi lesið atriðið þar sem hann fer til tannlæknis 20 sinnum og ég fann alltaf jafn mikið til með honum, úff svakaleg lesning.

Af því sumir eru leiðir og aðrir eiga erfitt þá kemur hér einn snilldar brandari sem BéEff sendi mér til að kæta mig að sjálfsögðu - sem og hann gerði en ekki hvað.
Knús í krús til ykkar.

Fréttatilkynning  frá  Þjóðleikhúsinu.

Þjóðleikhúsið sýnir um þessar mundir nýtt verk sem gerist
á Suðurlandi og nefnist " GLÆPAGENGIÐ " eftir Davíð Oddsson.


Leikarar eru:

Árni Johnsen

Gunnar Örlygsson

Guðjón Hjörleifsson


Gestaleikari er enginn annar en hinn ástsæli Eggert Haukdal.

Góða skemmtun.


E.s.

Sætaferðir verða frá Tuborg-verksmiðjunni og bílstjóri verður

Eyþór Arnalds.


Posted at 11:25 by liljurosin
Comments (5)  

Tuesday, November 14, 2006
Hvað er slæmt?

Er ekki slæmt að káfa á konu sem er dauð í teiti vegna ofdrykku? Mér var kennt það og held það sé rétt. Er ekki slæmt að naga þröskuldann hjá fólki um miðjar nætur (í rúman hálftíma-þar til hann var rekinn brott) og hræða fólk með því háttarlagi, rosalega er ég fegin að börnin mín voru ekki ein heima með barnapíu. Þá hefði maðurinn sennilega fengið að fjúka fram af stigahandriðinu. Hann var á heimleið háfltíma áður og þetta var greinilegur ásetningur hans að elta mig. Hef sagt 8 orð við manninn (var að vinna og neyddist til þess, enda alin upp við að vera kurteis) og varla litið á hann - ekki við mig að sakast.

Eflaust er þetta saklaust grey, bærinn er fullur af slíku fólki. Hef ekki heyrt að það nagi þröskulda hjá fólki um miðjar nætur þrátt fyrir það. Hann var á heimleið þessi maður fyrr um nóttina og það var greinilegur ásetningur hans að elta mig uppi. Hvort hann hefði gert eitthvað eður ei veit ég ekki, enda þekki ég manninn EKKERT þó hann haldi annað. Ef þú KONA þekkir þennan mann svona vel afhverju segir þú honum ekki að svona háttarlag hræði fólk, leiðbeinir honum um hvað er sæmileg hegðun ef hann ætlar að búa hér í þessu bæjarfélagi.

Það að eiga erfitt er ekki það sama og að haga sér eins og hálfviti. Ég veit um fullt af fólki sem á erfitt en hagar sér eins og fólk gerir flest. Ég hef til dæmis átt erfitt þetta árið ásamt mörgum öðrum. Ég hef ekki getað fundið ástæðu til að nýta mér það að ég hafi átt erfitt sem einhverja afsökun fyrir einu eða neinu. Jú ef ég fell í þroskasálfræði þá get ég örugglega sagt að ég hafi verið "úti að aka" þessa síðustu mánuði og hefði eflaust átt að fresta háskólanámi til byrjun árs 2007. Get ekki sagt að þessi óskemmtilega uppákoma hafi greitt neitt sérstaklega úr mínum erfiðleikum, aukið þá ef eitthvað er. Honum líður vonandi betur í sinum erfiðleikum.

Eitt að lokum, það hefur 2 áður verið kommentað á bloggið mitt án nafns og það fer alveg óskaplega í taugarnar á mér - í guðanna bænum haldið kjafti þið sem ekki getið verið manneskjur til að kvitta fyrir skoðunum ykkar. Allavega ekki á minni síðu takk kærlega fyrir það.

Gat ekki orða bundist þar sem komment undirritað af KONU var skilið eftir á síðunni minni. Hafði ekki í huga að tala meira um þennan mann og hefði ekki gert ef þessi KONA hefði haft manndóm í sér að tjá sig undir nafni. Þessi KONA hefði líklega ekkert á móti því að finna ókunnugan karlmann fyrir utan dyrnar hjá sér um miðjar nætur - verði henni hann að góðu.

Lilja, sem er búin að vera með hurðina hjá sér læsta í 2 vikur út af manni sem á bara erfitt - sá eini á Íslandi í dag.


Posted at 15:03 by liljurosin
 

Saturday, November 11, 2006
Á dauða mínum átti ég von...

Fór og borðaði pizzu með Gunnsu minni um hálf níu í kveld. Auðvitað var pizzan lostæti og bjórinn líka. Sátum að kjafta og um 23 ætlaði ég að arka heim, vakna hress hitta eina vinkonu mína og læra... haldiði ekki bara að barinn hafi fyllst... í orðsins fyllstu =) ég úr pæjuskónum í innskóna mína og byrjaði að selja drykki í gríð og erg =O)

Fyrsti maðurinn á svæðið var náunginn sem kom og dinglaði hjá mér á sunnudaginn síðasta, dæs hvað mér brá - var bara kurteis og seldi honum drykki eins og öðrum. Gestir voru flestir hinir spökustu utan einn leiðindadurg með gleraugu og stórt nef sem heldur þeim uppi.

Ég og Gunna biðum eftir því að eftirlegu kindurnar myndu koma sér heim og skutluðum okkur út og inn í bíl... Gunnar Ingi kom aðeins að ræða við okkur og hann sagðist hafa séð náungann á heimleið sem dinglaði hjá mér um daginn. Svakalega var ég fegin, var pínu smeyk um annað...... en haldiði ekki bara að mannskepnan birtist skyndilega bankandi á bakdyrnar á Víkinni!! hann var svo hraunaður að hann sá ekki 2 bíla í gangi sem í voru 3 mannsveskjur að ræða málin. Við spóluðum í burtu og Gunnar Ingi fylgdist með skepnunni (guði sé lof fyrir stóra bóður hennar Gunnu - löggumann og öryggisvarslan)... hittum svo Gunnar Inga aðeins síðar... hvar var mannfýlan þá?? jú rétt ágiskun - fyrir utan dyrnar  hjá mér. Úff mér leið alls ekki vel. Rúntuðum dágóða stund, hann stóð enn við dyrnar hjá mér. (djöfull er ég fegin að hafa verið að vinna, þrátt fyrir að vera drullulasin).

Ákváðum í samráði við Gunnar Inga að fara saman inn og segja mannfýlunni að hafa sig á brott og aldrei láta sjá sig við mínar dyr aftur. (enda ekki minn stíll að láta einhvern hálfvita hrekja mig að heiman, ónei) Gunnar Ingi fór heim til að vera klár í löggubílinn ef við myndum hringja, sem þurfti ekki sem betur fer. Mann fáráðurinn hunskaðist burt og man vonandi eftir lesti Gunnu yfir hausmótunum á sér. Ja hérna hér... ég á ekki til orð.

Sit og sötra maltbjórinn minn og get sko ekki sofnað, það er alveg ljóst. Ætla í sjóðandi heita sturtu til að ná úr mér hrollinum og leggjast svo í bólið mitt í náttbuxum og lopapeysu... veit ekki með kökukeflið hehe en allavega kemur gemzinn minn með mér. Jú þar eru nýjustu símanúmerin hjá Öryggisvörslunni og farsíminn hjá löggumönnunum. Skemmtilegt helvíti ekki satt!!

Svo segir Gunna að ég sé Grimmhildur Grámann hehe, það fóru 2 menn heim skælandi heim undan henni í nótt =O) Einar og Hrannar - ekki nöfn mér að skapi þessa dagana... ég segi bara góðan dag til ykkar, vildi að þetta væri fallegur morgun, þó ekki væri nema bara sólarupprás - sem ég elska að horfa á =O) neibb ekkert slík núna, bara myrkur og rok - allsvakalegt rok meira að segja - kannski ég fjúki bara út í buskann.

2 afmælisbörn í dag - ég veit hver þau eru =)


Posted at 05:15 by liljurosin
Comments (8)  

Thursday, November 09, 2006
Hviss bamm búmm


Maron að æfa sig fyrir tónleikana í dag
klikk á mynd til að sjá og heyra Smile

Það er meira hvað maður getur verið montinn af þessum ungum sínum,
held ég verði bara verri með árunum. Maron ætlar að spila á tónleikum í dag
með Gullu kennara. Það er mjög stutt síðan hann byrjaði að æfa og svo
byrjuðu hann og Gulla upp á nýtt... of löng saga. Hlakka ekkert smá til að sjá og heyra.

Finn fyrir köfnunartilfinningu öðru hvoru þessa dagana, nýtt fyrir mér.
Ekki stressuð, kann að stjórna því. Greinilegt að álagið finnur sér leið út =)
Gott mál, nýt þess þá bara betur þegar ég er ekki að kafna hehe.

Allt beingaddað... kannast einhver við það. Allavega er þetta ættarsjúkdómur hjá VW,
er nú bara búin að eiga 3 voffa. Allavega í vikunni þá þurfti hún Lilja að skríða inn um skottið og í framsætið - eins gott ég á station bíl hehe.
Svo sat ég eins og eymingi á meðan bíllinn hitaði sig, allar hurðir frosnar og
ekki séns að sjá útum gluggana... skottið er sko ekki hægt að opna innan frá.
En allavega, ég var með lyklana sem betur fer til að ræsa bílinn og beið bara róleg, hefði
örugglega haft það af að rífa upp hurðargúmmíið ef ég hefði fengið panic kast.
Ég er svo mikil snilld =O) vona að það hafi enginn séð aðfarirnar hehe.

Ohhh hvað það var gott að knúsa Elsu og Nonna í gær...

Knús til ykkar sætalingar ***


Posted at 13:07 by liljurosin
Comment (1)  

Monday, November 06, 2006
GMG

Nú er Liljan orðlaus... og skíthræddur að auki.

Í gær þegar dimma tók var dinglað hjá mér. Ég beið stutta stund eftir að einhver kæmi inn, svona eins og þeir sem mig þekkja gera. Neibb ekkert gerðist og ég fór til dyra. Stóð þá ekki maður þar sem ég þekkti ekki baun.


ég gapti og sagði hæ
mannstu ekki eftir mér?
uuuu nei!! gapti meira
síðan af barnum í gær...
jú eitthvað rámar mig í að hafa séð þig þar og...
þú, eða sko vinkona þín var eitthvað að tala við mig
já passar og... gapti pínu meira
mér datt í hug að kíkja á þig
uuuuu já ég er sko að læra og á msn fundi með 2 öðrum stelpum...
ok ertu að læra
já mjög upptekin sko... vertu blessaður
bless

Ég læsti um leið og hann fór að byrjaði að naga neglurnar,  mér leið eins og
hérna um árið þegar einn geðsjúklingur barði húsið hjá mömmu og pabba
allt að utan og öskraði inn um bréfalúguna og ég ein heima, úff það var martröð
og þetta líka... ætla rétt að vona að þennan mann sjái ég ALDREI aftur. Svaf nú samt ágætlega í nótt en... mér stendur ekki alveg á sama. Ekki oft sem ég verð smeyk - spurning um byssuleyfi og kökukefli undir koddann hehe.

Svo hringdi síminn áðan... ég ætlaði ekki að þora að svara en lét mig hafa það - ókunnungt númer sko hehe. En þetta voru bara strákarnir í Tölvulistanum sem vilja allt fyrir mig gera, þeir eru svo æðislegir =) mæli með strákunum þar - en hýsingin mín með stýringunni er eitthvað leiðinleg, þeir ætla að taka hana til baka og setja harða diskinn minn í ICY-BOX og senda mér hann - öðlingar.

Svakalega verð ég hamingjusöm á eftir þegar við "the gellz" verðum búnar með verkefnið í Samkiptum og tjáningu - niðurstaða okkar eftir allan lesturinn, glærur, fyrirlestur og videoupptökur er að best er að hlusta og spegla sig...

Lilja mýsla.


Posted at 10:29 by liljurosin
Comments (5)  

Friday, November 03, 2006
Ég er í lagi!

Veit ekki hvernig mér datt í  hug að skella mér í Háskóla ofan á allt annað sem hefur gengið á. En allavega, ef ég enda ekki í spennitreyju og róandi í rassinn þetta árið þá þoli ég líklega allt - svei mér þá. Kannski er ég bara sterkari en ég hélt, hef allavega oft komið mér á óvart á þessu ári sem hefur ekki verið það gleðiríkasta né auðveldasta. Það sem ekki bugar mig gerir mig sterkari.

Langar í lagið með Ellen Kristjánsdóttur, Þú ert mér allt, bara svona til að geta grenjað aðeins yfir því... hef ekki getað hlustað á mörg mín uppáhaldslög síðan í apríl... svona er ég stútfull af tilfinningum sem flækjast um hausinn á mér alla daga.
(ritað klukkan 11:48 í dag)

Var ég búin að segja ykkur frá foreldraviðtalinu sem ég fór í á mánudaginn... ekki. Það var sem sagt viðtal hjá Eyrúnu kennaranum hans Marons, hún var nú bara nokkuð ánægð með pilt, þarf aðeins að bæta letina og skriftina. Eitt gerði mig voðalega montna =) hún biður hann stundum um að aðstoða sig í tímum. Labba um eins og lítill kennari og aðstoða bekkjarfélagana.

Var í pizzu og bjór hjá mömmu og pabba með ungana mína með mér. Hvað hef ég gert til að eiga svona frábæra einstaklinga sem foreldra, svo ég tali nú ekki um hann brósa minn, hann Eini. Takk fyrir að vera til öll 3 - ég elska ykkur meira en orð geta lýst.
Búin að næla mér í Ellen og nokkrar góðar söngkonur að auki með henni =) snilld.

Búið að taka heita vatnið af næstu 6 tímana - mín komin í náttbrókina sem ég keypti í R-vík um daginn (fór að ráðum Elsu frænku og Nonna-enginn í skóla nema eiga góða náttbrók) að ógleymdum skíðasokkunum upp að hnjám =) gerist ekki betra. Nenni ekki að læra meira í dag, kós fyrir framan TV í korter og svo draumalandið.
Svakalega langar mig hingað á morgun... kemst vonandi sem fyrst. Fór síðast 20. apríl, það er nú ekki ýkja langt síðan - en maður minn hvað það hefur verið .... tími.


Ég og stubbarnir mínir 15. apríl í Oddskarði - páskar 2006

Nóttina og góða helgi *** liljurósin kveður að sinni.


Posted at 23:58 by liljurosin
Comments (4)  

Tuesday, October 31, 2006
Fílatár

Ég fæ illt í hjartað og tár í augun við að lesa svona frétt.
Þetta er sorglegra en orð fá lýst.
„Á að nauðga í kvöld?“

Fannst þetta áhugavert - mig langar í fílaspegil =O)
Búin að vera að læra þetta í þroskasálfræði.
Þar voru það ungar með rauðan lit á nebba
ekki hvítan kross á enni =) snilld
Fílaspegill


Posted at 10:28 by liljurosin
Comments (2)  

Monday, October 30, 2006
Mánudagur hjá liljurósinni

Það er sko mánudagur í dag - það er alveg ljóst - dagatalið lýgur ekki, né spegillinn =O)

Var að gera útdrátt í gær sem er víst betri en enginn... mér var allavega tjáð það - held það séu bara sögusagnir eins og með sinadráttinn hehe, bæði jafn vont og leiðinlegt. Þá kemst ég sem rannsóknarmaður að þeirri niðurstöðu að þeim sem finnst útdráttur/sinadráttur betri en enginn hafi bara aldrei fengið almennilegan drátt. Hvað skyldi Gsæm segja við þessum drætti??
Fjallahringurinn var eitthvað að trufla mig á meðan útdrátturinn fæddist - gat ekki hætt að horfa og hugsa. Veðrið var líka svo rosalega fallegt í gær, langaði mest á skíði þegar ég horfði á hvítar húfur tindanna. Var svo minnt á ljúfar stundir í miðjum klíðum... ekki leiðinlegt það =O)

Helgin var algjör steypuvinna og á kínversku í þokkabót.
Það var ekki fullt tungl en ósköp sem gestir okkar voru yfirstrikaðir og skemmtilega hundleiðinlegir sumir hverjir. Hverjum dettur í hug að fara að skemmta sér með þeim formerkjum að lemja og/eða drepa einhvern... mér er lífsins ómögulegt að skilja það - hef aldrei farið út að skemmta mér með öðrum formerkjum en að skemmta mér og þá helst einhverjum öðrum að auki =) enda stelpan með eindæmum skemmtileg hehe.

Fékk x-stórt knús frá vini, tvisvar meira að segja. Nú hann var að lesa bloggið mitt og þar sagðist ég vilja knúsa vini mína fast og innilega - hann tók mig á orðinu - takk sæti =O) Dansaði ekki um helgina =(   nema bara við bjórdæluna - hún er nú svo sem ágæt þessi elska. Ég verð bara að setja stefnuna á að dansa fyrir jól... fer nú ekkert að örvænta strax =O) Gaman að the gellz sem mættu í 80´s dressum og dilluðu sér við diskótóna Fjörkálfsins, svona á að skemmta sér.

Frétt á mbl.is... ég persónulega vildi ekki vita hvort ég gekk með strák eða stelpu og held ég myndi ekki heldur vilja sjá hvernig barnið lítur út... æi það er svo spennandi að bíða... en hef ekki prófað hitt og eins og með svo margt í henni veröld þá má fólk bara hafa þessa hluti eins og það kýs. Ég skil fólk vel sem vil kíkja í pakkann og eða kíkir ekki - skiptir ekki máli og það kemur engum við nema manni sjálfum =)

Knús frá þeirri þreyttu, geispuðu og ísköldu *** er enn að horfa...


Posted at 12:12 by liljurosin
Comments (2)  

Previous Page Next Page