Það er ekki ástin heldur
afbrýðissemin sem vill fyrir hvern mun vita allt.
hverju orði sannara, ekki rétt... Frithiof Brandt



<< December 2009 >>
Sun Mon Tue Wed Thu Fri Sat
 01 02 03 04 05
06 07 08 09 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31


If you want to be updated on this weblog Enter your email here:



rss feed


Monday, June 18, 2007
Hálft ár...

og mundi aðgangsorðið og lykilorðið... var að heyra að fólk heldur bara að ég athyglissjúka sé hætt að blogga - nauts það er nú aldeilis ekki rétt. Ákvað því að skella inn slóðinni á lénið mitt hérna, það er reyndar í færslunni fyrir neðan sem linkur undir orðinu LOKAORÐ Smile Ég keypti mér lén um áramótin og fór að blogga þar, en ekki hvað Wink

hofn.net

Góðar stundir sem fyrr og verið góð við hvort annað ***


Posted at 14:15 by liljurosin
Make a comment  

Sunday, December 31, 2006
Hilsen


Posted at 16:46 by liljurosin
Comments (6)  

Sunday, December 24, 2006
Handahlaup...

...hef aldrei verið mikil íþróttamanneskja - þar sem undirbúningur þessara jóla voru hálfgerð handahlaup - var yfirsýn mín ekki mjög viskuleg og skipulagið gjörsamlega fokið út í veður og vind. Sendi einhver jólakort og ef satt skal segja man ég varla hverjum ég sendi... hef því ákveðið að skella hér inn smá jólakveðju frá okkur =O)

GELÐILEG JÓLIN TIL YKKAR FRÁ OKKUR
RISAJÓLAKNÚS OG HAFIÐ ÞAÐ YNDISLEGA GOTT
JÓLASVEINAMAMMA STEKKJASTAUR OG STÚFUR


Posted at 18:18 by liljurosin
Comments (7)  

Saturday, December 23, 2006
Þorlákur Toyota =O)

Úff segi ég nú bara - svakalega er ég hamingjusöm yfir því að hafa verið að vinna en ekki drekka í gær - svo ég tali nú ekki um að skríða inn í stigaganga hjá fólki og sofna þar já eða halda teiti. Verð að segja að jólahlaðborð í gærkvöldi fannst mér ekki gáfulegur leikur, auðvitað er ekki víni haldið að fólki - en margir eru þreyttir - slappa af eftir jólaösina og hvernig endar það - jú allir á hvínandi perunni og rúmlega það - sök sé að unglingarnir sem þurfa bara að hugsa um að sofa, éta, skíta og skeina sig fái sér í glas en... allt fjölskyldufólkið =(

Jæja farin í brúsabað - nú ætlum við mamma að halda uppi hefð okkar og fara saman út að borða skötu/tindabykkju í hádeginu... hlakka mikið til og er orðin vel hungruð - sofnaði nú reyndar ekki fyrr en hálf sjö í morgun - enda ball til 0400.
Jólin eru alveg að skella á - mig vantar eiginlega eina gjöf... annars á ég nú eftir að gera slatta í dag - jamms það er bara næs að vera með allt niðrum sig ein jólin hehe - læri ég eitthvað af því - eflaust ekki, læri bara eitthvað annað í staðinn.

Kæstar kveðjur frá mér - enda nývöknuð og dragúldin =O) NOT!!

 


Posted at 11:11 by liljurosin
Comments (2)  

Wednesday, December 20, 2006
Svaðaleg pressa...

Ohhh er komin í jólafrí - frá skólanum í það minnsta. Tók síðasta próf 11. desember og var að klára síðustu ræðuna í þjáningu - er með hæsi, hor og særindi  í hálsi þannig að ég var búin með hálfa whiskey þegar yfir lauk og farin að hiksta meira en ræskja mig hehe. Opnaði sem sagt konfekt kassann minn áðan og fékk mér uppáhaldmolann og einn maltbjór með - fullkomið. Laufabrauðsbakstur á morgun og afmæli hjá stóra barninu mínu á fimmtudag - ætla að reyna að koma jólakortum í póst á milli þess arna... hef aldrei verið svona sein með allt og allt - en skólinn og annað gengur fyrir þannig að...

Ég og mamma skruppum í borgina - kíktum í nokkrar búðir og fylltum eitt stykki jeppa... engar ýkjur sko - fékk martröð aðfaranótt sunnudags yfir hrúgunni í bílnum, vaknaði snemma skúraði okkur út og endurhlóð bílinn, jeremías. Mamma bætti um betur eftir endurhleðsluna... jamms sængur, koddar og arinn - segi það satt.

Bleijupartýið hjá mér og mömmu á laugardagskvöldið var alveg að slá í gegn - það sem hægt er að hlægja að engu og öllu =O) Bjögga frænka kom í teitið og skemmti okkur og við henni.

Fór til Reykjavíkur til að næla mér í sérvalið konfekt frá Nóa og síríusi - steingleymdi því en kom heim í staðinn með Lukku. Já ég er endanlega búin að tapa glórunni - hef tekið upp á ýmsu en þetta slær allt út... Lukka er 9 mánaða tík af tegundinni Beagle. Við eigum ágætlega saman, erum báðar frekar og stríðnar =) hún er þó eilítið loðnari en ég (hef þó oft verið nálægt því að ná svipaðri órækt) og eitt sem hún hefur fram yfir mig líka - það er þefskynið - enda sporhundur, gæti líklega tekið það að mér með smá æfingu. Nú er bara að næla sér í byssuleyfi og fara á refa veiðar =O) ætti það nú bara eftir hehe.


Þetta er hún Lukka


Sófadýr í dekri

Úff það var leiðinlegt að keyra í Zorann en heimleiðin var sú svakalegasta sem ég hef lent í lengi - það var svo glerhált að við vorum 7,5 tíma á leiðinni heim, vorum á 30 til 80 km hraða alla leiðina - aldrei slíku vant var leiðin Vík - Klaustur best... langt síðan ég hef lent í svona skítafærð segi bara úff aftur. Ég tók fram úr tveimur bílum austan við afleggjarann að Dyrhólaey - uppi á hæðinni - þar voru á ferð þýsk rúgbrauð (húsbílar) okkur mömmu varð á orði að þeir væru pottþétt á sumardekkjum og sú var raunin (frétt af sumar rúgbrauðum) - ég skautaði á 4x4 bíl og nöglum - hefði ekki boðið í að vera á þessum brauðum, það er ekki í lagi með sumt fólk. Eins gott að bleijuteitið var ekki blautt - hefði ekki boðið í að keyra þetta með bjórbragð í munnviki og sára vöðva eftir glasalyftingar... hehe.

Ferðin hefði verið fullkomnuð með jólatréi á toppnum á bílnum =O) jæja farin í koju - bjórinn búinn og 1/2 kg af súkkulaði komið á bossann á mér =O) Nóttina frá okkur til þín ***

E.s. diskurinn jól og blíða með Baggalút er þvílík snilld - ekki láta hann framhjá ykkur fara - reddaði eiginlega heimferðarhálkugeðveikinni =O)


Posted at 01:21 by liljurosin
Comments (5)  

Friday, December 08, 2006
Morgunógleði!!

Já svei mér þá, það munaði minnstu að ég myndi æla í morgun þegar ég renndi yfir fréttirnar á mbl.is - hvað á að gera við svona mannskepnur?? Á ekki orð til að lýsa þessu fyrirbæri. KÆRÐUR Á NÝ FYRIR NAUÐGUN

Er að smíða þessa dagana - eða byrjaði aðeins í gær. Þessar smíðar eru úr orðum og ætlaðar til svars í prófi í mál og ritþjálfun á mánudagsmorgun. Það er nú ein geggjunin - hvernig fer manneskja eins og ég, sem hef pikkað á tölvu í mörg ár, að því að pára 10 bls. á 2 klst. Það verður fróðlegt að lesa - ef hægt verður að lesa það - skrifa nefnilega ekki mjög smekklega og alls ekki þegar ég er að flýta mér - vona að Gsæm og félagar þurfi ekki að sjá þann ófögnuð.

Rakst annars á ótrúlega flottan kveðskap í gærkvöldi - er að hugsa um að leyfa ykkur að njóta með mér - ég er svo mikið fyrir það. Megið líka giska á hvað þessi gífurlega flotta tækni heitir =O)

Drósir ganga, dreyrinn niðar,
drjúpa skúrir.
Rósir anga, reyrinn iðar,
rjúpa kúrir.
           Jóhannes úr Kötlum.

Brakar rekkja, krakkar kurra.
krjúpa sveinar.
Rakar ekkja, rakkar urra,
rjúpa veinar.
            Baldur Hafstað.

Fyrst ég er byrjuð þá er hér ein í viðbót sem ég las fyrir Maron í gærkvöldi þegar við vorum að kúra yfir lærdómnum mínum og rifja upp tröllasýninguna sem var hjá 4.E í gær. Honum fannst hún algjör snilld og skyldi hana vel, ætlaði með hana í skólann og setja upp á vegg =O)

Markvissast, mundi ég segja,
er menntaþorstanum svalað.
ef krakkakvikindin þegja,
svo kennarinn geti talað.
            Jón Thor Haraldsson.

Þeir (kennararnir) þurfa nú ekki að hafa áhyggjur af þessu í fjarnáminu hehe.

Þar sem ég var nær búin að keyra á ljósastaur þegar ég heyrði um skýstrokkinn í London, svipað og Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur og veðurdellukarl, þá fór ég að grúska aðeins á síðunni hans - sem ég skoða stundum til að stytta mér aldur, var nokkuð viss um að hann þyrfti að tjá sig um þann strokk. Rakst þar á fróðlega lesningu um afleiðingar Móðuharðindanna 1783 á veðurfar. HÉR MÁ LESA ÞANN FRÓÐLEIKSMOLA.

Bezt að hætta þessu pikki í bili og fara að snúa sér að lærdómnum, slangur, slettur og Marðar stafsetning uppi á borðum í dag - yndisleg blanda sem getur ekki annað en svæft mig... zzzZZZZzzzZZZZ er svakalega geispuð reyndar, ég bara get ekki farið að sofa á skikkanlegum tíma - uss þetta er alls ekki sniðugt til lengdar.
Knús til ykkar sem hafið gaman að kveðskap og bulli hehe. ***


Posted at 12:16 by liljurosin
Comments (13)  

Wednesday, December 06, 2006
full monty

Svaðalega sem var gott að fara út að borða í hádeginu með frænda eftir prófpúlið - af því er helst að segja að ég tel að ég hafi náð að klóra mig út úr prófinu. Það gildir reyndar ekki 100% þannig að einkunnin í skýrslugerðinni á athugun á barni þarf líka að koma vel út =O)

Það er nú bara nokkuð notaleg tilfinning að vera búin að ná 4 fögum af 5 (vona það allavega) - ekki hefði mig grunað það þegar ég settist á skólabekk í haust með allt niðrum mig (segi nú bara svona) ónei var nú bara ákveðin að gera mitt besta og ekki vera miður mín þó ég myndi hætta - eitt próf eftir og eitt verkefni - þá er þessu misseri lokið.

Kommentin í sumum færslum detta inn og út - er draugur á síðunni minni - eða striðnispúki kannski bara?? ja maður spyr sig.

Ég og stubbarnir versluðum okkur jólajóla í dag, settum upp ljós hjá þeim og bökuðum saman, leyfði þeim reyndar að gera allt sjálfum (var með tilbúið deig) og það gekk bara vel, fyrir utan hvað eldhúsið var gífurlega snyrtilegt... mammsa og pabbi kíktu á litlu dóttur sína í kvöld og komu færandi hendi eins og vanalega.

Maron er búinn að vera með einhver ónot í mallakút, það er þessi skemmtilega magapest sem er að ganga hér í austur sýslunni - Ægir er sprækur sem aldrei fyrr og kemur stoltur heim úr skólanum á hverjum degi með eitthvað jólaföndur - svo er hann svo hrikalega duglegur að lesa og reynir að skrifa allt sem honum dettur í hug - fékk þessa setningu frá honum á msn í kvöld: nenirðúaðfaraaðnáípulsuna. Hann var farið að lengja eftir pylsunni sem ég var búin að lofa honum í kvöldmatinn - gerist ekki sætara. Mér finnst ótrúlegt að það skuli í raun bara vanta eitt enn og þ í stað ð í þessa setningu - hann er snillingur eins og mamma sín þessi elska hehe.

Fór nú bara að blogga af því að jólaserían sem ég var byrjuð að setja í stofugluggann dó - jepps og ég er búin að finna hvaða ljós er bilað - líklega framleiðslugalli - allavega eru rafvirkjahæfileikar mínir og verkfæra lager ekki nógu vel búnir til að fikta í þessum seríum sem hanga saman á lyginni að mér finnst - ekki hægt að eiga mikið við það tel ég - svarar ekki kostnaði... enda nýbúin að kaupa hana og fer bara og væli svolítið á morgun - hef svo rosalega gaman að því...


Af því að ég fer bráðum í Zorann þá er nú betra að hafa kort af herlegheitunum =O)

Góðar stundir og fáið ykkur heitt súkkulaði með rjóma og vel skreytta piparköku með, ég ætla að gera það næsta sunnudag... ummmm eftir villibráðajólahlaðborðið sem mér er boðið á í sveitasæluna á laugardaginn... get varla beðið svo gott var það í fyrra.

Hér er smá grín fyrir þá sem eru dúllur í sér og elska mörgæsa skriður =O) MÖRGÆSIN SÆTA  setja nafnið á þeim sem að þér þykir vænst um og bíða svo og sjá, góða skemmtun. LLL


Posted at 22:56 by liljurosin
Comments (6)  

Tuesday, December 05, 2006
Þroska hvað...

Úff hvað ég hlakka til klukkan 12:00 á morgun - þá er þetta blessaða sálfræðipróf að baki - ekki taka því þannig að þetta sé leiðinlegt en þvílíkt efni sem maður þarf að kunna utan að...

Mig dreymdi þroskaða karlmenn í nótt og mikið af þeim - ekki taka því þannig að ég hafi verið með draumb**l - nei þetta voru Freud, Piaget, Vytgosky og allir hans vinir sem voru/eru allir hálf gaga að mínu mati - sumir hverjir allavega.

Ég er á góðri leið með það líka - skrapp í búð í gærkvöldi rétt fyrir lokun - vantaði tilfinnanlega saltstangir og ídýfu... (don´t ask-ekkert jólakjóla kjaftæði á mínum bæ hehe) nú þegar ég kom heim þá kom upp úr pokanum - saltstangir - ídýfa - 1.ltr undanrenna og... 2 stykki jólanammidagatöl!!! Hef aldrei keypt slíkt áður... já eitthvað verður undan að láta til að koma öllum þessum körlum og kenningum þeirra í skallann á mér - ég gæti munað afmælisdagana þeirra - kerlinganna þeirra og barna - það myndi ekki vefjast fyrir mér.

En maraþon lestur e. hádegi  (allir búnir að lofa mömmsu að vera x-prúðir)(svo er bara 40% fall í þessum áfanga - úgg) svona til að fylla allar glufur og mest þykir mér nú leiðinlegt að senda litla barnið mitt á jólasamveru með ömmu sinni - en við erum búin að ræða málin vel og vandlega og hann og amma eru alsæl með að fara saman. Guðný amma bakaði meira að segja smákökur handa stubbanum sínum í gær - þeim leiðist nú ekki að dúlla sér saman =O)

Ætla að skreyta og baka með ungunum eftir hádegi á miðvikudaginn - svo tekur við önnur lestrartörn á fimmtudaginn - gaman gaman...

Vinna - lesa - próf - skreyta - baka - vinna - lesa - vinna - lesa - lesa - jólahlabbi slurp - lesa - próf... næstu dagar hjá mér hehe er ég ekki spennandi.
Svo tekur við: taka til - þrífa - jólakort (kannski) - afmæli - kaffiboð Hvolsvelli Smile - Reykjavík - versla Tongue - pakka inn... afslöppun Big Smile ef ég verð ekki komin í spennitreyju =O)

Knús til allra jólaveinanna minna frá ykkar heittelskuðu Grýlu ***


Posted at 08:16 by liljurosin
Comments (4)  

Saturday, December 02, 2006
Hríslan og lækurinn

Var að koma af jólahlabba á Víkinni. Bauð Ástu með mér í þakklætisskyni fyrir að leyfa mér að skrifa lífssögu hennar fyrir skólann. Hún alsæl með kvöldið - mikill stuðbolti og tónlist er mikið áhugamál hjá henni.

Þetta var algjör snilld, þeir félagar Davíð og Stefán eru meiriháttar skemmtarar. Davíð var reyndar á sjómannaballinu í sumar en þetta sló það út og gott betur. Ég sat agndofa og hlustaði á bullið og sönginn sem var 10 stig á gæsahúðarkvarða, það er bara svo unaðslegt að hlusta á svona listamenn. Ekki var leiðinlegt að heyra Sívar Árna taka 3 lög með þeim, bara gaman.

Þeir gerðu grín að öllu og öllum ásamt því að taka nokkur alvöru lög, úff þegar þeir tóku lagið Hríslan og lækurinn eftir texta Páls Ólafssonar ástsjúka, þá minnti það mig bara á eitt =O) það hefði fullkomnað kvöldið ef þeir hefðu tekið Veistu ekki það er baldursbrá - það finnst mér fallegast á diskinum Söngur riddarans - sem ég er að hlusta á í þessum pikkuðu.

Jæja bezt að hætta þessu bulli, hef frá mörgu að segja en nenni ekki að segja neitt, tærnar upp í loft eða í dansskóna - þeir sem mig þekkja vita að val mitt er erfitt - þarf reyndar að dansa til nýju skóna mína hehe - fyrir utan hvað það er gott að slaka aðeins á í próflestrinum.... hummmm.

Nóttina krúttin mín ***


Posted at 00:17 by liljurosin
Comments (4)  

Friday, November 24, 2006
Skil ekki

Ég hef aldrei getað skilið hversu mikið og hversu oft er hægt að velta sér upp úr einum fótboltaleik, einni formúluspyrnu o.s.frv. Það þarf að ræða leikinn í 20 daga áður en hann er spilaður, spjallþáttur í 2 tíma fyrir leik og 5 tíma umræður eftir leik... hvað er málið, mér er spurn?? Hafa mennirnir ekkert skemmtilegra að gera =O) Núna sá ég einhverja einkunnagjöf einstakra manna í einhverjum leik!! einkunnagjöf

En allavega, ég ætla ekki að velta mér upp úr pizzunum sem ég er að fara að baka um helgina, ætla að fletja, áleggja, baka og selja hratt og örugglega. Bjórinn verður að auki seldur í stríðum straumi og engir bakþankar þar heldur, ekki mitt mál hvað fólk sturtar hratt í sig - ég tel bara tippsið sem ég fæ hehe.

Er alltaf að læra, svona fyrir þá sem eru að spá í hvað ég geri í mínum frítíma. Þessi önn fer nú að taka enda, 2 stór verkefni í skilum 4 des. og svo eitt lítið eftir í upplýsingatækni - the próf er svo 6 des. úff hvernig skyldi það ganga - geri mitt bezta get ekki betur er það... svo er það bara Reykjavíkin með mömmsu - svaðalega verður gaman hjá okkur - tæta og trylla =O) ... ég, Anna Jóna og Erla fengum 9 fyrir útdráttinn okkar - góður dráttur maður Wink

Helgina allir ljúflingarnir mínir og knús ***


Posted at 11:12 by liljurosin
Comments (5)  

Next Page