|
Ég hef aldrei getað skilið hversu mikið og hversu oft er hægt að velta sér upp úr einum fótboltaleik, einni formúluspyrnu o.s.frv. Það þarf að ræða leikinn í 20 daga áður en hann er spilaður, spjallþáttur í 2 tíma fyrir leik og 5 tíma umræður eftir leik... hvað er málið, mér er spurn?? Hafa mennirnir ekkert skemmtilegra að gera =O) Núna sá ég einhverja einkunnagjöf einstakra manna í einhverjum leik!! einkunnagjöf En allavega, ég ætla ekki að velta mér upp úr pizzunum sem ég er að fara að baka um helgina, ætla að fletja, áleggja, baka og selja hratt og örugglega. Bjórinn verður að auki seldur í stríðum straumi og engir bakþankar þar heldur, ekki mitt mál hvað fólk sturtar hratt í sig - ég tel bara tippsið sem ég fæ hehe. Er alltaf að læra, svona fyrir þá sem eru að spá í hvað ég geri í mínum frítíma. Þessi önn fer nú að taka enda, 2 stór verkefni í skilum 4 des. og svo eitt lítið eftir í upplýsingatækni - the próf er svo 6 des. úff hvernig skyldi það ganga - geri mitt bezta get ekki betur er það... svo er það bara Reykjavíkin með mömmsu - svaðalega verður gaman hjá okkur - tæta og trylla =O) ... ég, Anna Jóna og Erla fengum 9 fyrir útdráttinn okkar - góður dráttur maður Helgina allir ljúflingarnir mínir og knús *** |
| Björg November 24, 2006 02:29 PM PST Eins gott að S&H verði ekki á sama stað og mammza þín þegar þið farið að tæta og trylla. Haldi ykkur bara frá fangaklefunum!! :-) | ||
| Liljan November 25, 2006 12:05 PM PST Hvað meinarðu stelpa, ég og mammza í jeilinu? Ekki okkar stíll, hef nú gert ýmislegt um dagana en fangaklefa hef ég bara séð í starfskynningu hehe. | ||
| Björg November 27, 2006 10:11 AM PST Bara að gínast í þér sæta. | ||
| Kiðlingurinn December 1, 2006 10:31 AM PST Hvað dag ferðu suður og hvaða dag ferðu heim. Er líka á leiðinni í sódómu. BTW.. til hamingju með dráttinn... í hvaða fagi var það? | ||
| Anna December 2, 2006 12:00 AM PST Hey þú hvar ertu eiginlega :( þú verður að fara að slá náminu upp í kæruleysi og blogga svo ég hafi eitthvað að gera í mínu kæruleysi :( | ||
| Leave a Comment: |