Entry: Hríslan og lækurinn Saturday, December 02, 2006



Var að koma af jólahlabba á Víkinni. Bauð Ástu með mér í þakklætisskyni fyrir að leyfa mér að skrifa lífssögu hennar fyrir skólann. Hún alsæl með kvöldið - mikill stuðbolti og tónlist er mikið áhugamál hjá henni.

Þetta var algjör snilld, þeir félagar Davíð og Stefán eru meiriháttar skemmtarar. Davíð var reyndar á sjómannaballinu í sumar en þetta sló það út og gott betur. Ég sat agndofa og hlustaði á bullið og sönginn sem var 10 stig á gæsahúðarkvarða, það er bara svo unaðslegt að hlusta á svona listamenn. Ekki var leiðinlegt að heyra Sívar Árna taka 3 lög með þeim, bara gaman.

Þeir gerðu grín að öllu og öllum ásamt því að taka nokkur alvöru lög, úff þegar þeir tóku lagið Hríslan og lækurinn eftir texta Páls Ólafssonar ástsjúka, þá minnti það mig bara á eitt =O) það hefði fullkomnað kvöldið ef þeir hefðu tekið Veistu ekki það er baldursbrá - það finnst mér fallegast á diskinum Söngur riddarans - sem ég er að hlusta á í þessum pikkuðu.

Jæja bezt að hætta þessu bulli, hef frá mörgu að segja en nenni ekki að segja neitt, tærnar upp í loft eða í dansskóna - þeir sem mig þekkja vita að val mitt er erfitt - þarf reyndar að dansa til nýju skóna mína hehe - fyrir utan hvað það er gott að slaka aðeins á í próflestrinum.... hummmm.

Nóttina krúttin mín ***

   4 comments

Kiðlingur
December 3, 2006   11:57 AM PST
 
Engar myndir???
Liljan
December 3, 2006   05:50 PM PST
 
Nei engar myndir... bara minningar =O)
iddorb
December 4, 2006   09:55 PM PST
 
söngur riddarans er toppurinn
fannstu engan sætan að dansa við..........
Liljan
December 5, 2006   08:30 AM PST
 
Skórnir eru allavega orðnir mjúkir =O) sms-ið sem kom mér upp úr sófanum og á ball - drullaðu þér í pilsið og komdu að dansa við mig hehe - auðvelt að plata mig í skóna... eða var það öfugt, æji man það ekki.

Leave a Comment:

Name


Homepage (optional)


Comments