Entry: Þroska hvað... Tuesday, December 05, 2006



Úff hvað ég hlakka til klukkan 12:00 á morgun - þá er þetta blessaða sálfræðipróf að baki - ekki taka því þannig að þetta sé leiðinlegt en þvílíkt efni sem maður þarf að kunna utan að...

Mig dreymdi þroskaða karlmenn í nótt og mikið af þeim - ekki taka því þannig að ég hafi verið með draumb**l - nei þetta voru Freud, Piaget, Vytgosky og allir hans vinir sem voru/eru allir hálf gaga að mínu mati - sumir hverjir allavega.

Ég er á góðri leið með það líka - skrapp í búð í gærkvöldi rétt fyrir lokun - vantaði tilfinnanlega saltstangir og ídýfu... (don´t ask-ekkert jólakjóla kjaftæði á mínum bæ hehe) nú þegar ég kom heim þá kom upp úr pokanum - saltstangir - ídýfa - 1.ltr undanrenna og... 2 stykki jólanammidagatöl!!! Hef aldrei keypt slíkt áður... já eitthvað verður undan að láta til að koma öllum þessum körlum og kenningum þeirra í skallann á mér - ég gæti munað afmælisdagana þeirra - kerlinganna þeirra og barna - það myndi ekki vefjast fyrir mér.

En maraþon lestur e. hádegi  (allir búnir að lofa mömmsu að vera x-prúðir)(svo er bara 40% fall í þessum áfanga - úgg) svona til að fylla allar glufur og mest þykir mér nú leiðinlegt að senda litla barnið mitt á jólasamveru með ömmu sinni - en við erum búin að ræða málin vel og vandlega og hann og amma eru alsæl með að fara saman. Guðný amma bakaði meira að segja smákökur handa stubbanum sínum í gær - þeim leiðist nú ekki að dúlla sér saman =O)

Ætla að skreyta og baka með ungunum eftir hádegi á miðvikudaginn - svo tekur við önnur lestrartörn á fimmtudaginn - gaman gaman...

Vinna - lesa - próf - skreyta - baka - vinna - lesa - vinna - lesa - lesa - jólahlabbi slurp - lesa - próf... næstu dagar hjá mér hehe er ég ekki spennandi.
Svo tekur við: taka til - þrífa - jólakort (kannski) - afmæli - kaffiboð Hvolsvelli Smile - Reykjavík - versla Tongue - pakka inn... afslöppun Big Smile ef ég verð ekki komin í spennitreyju =O)

Knús til allra jólaveinanna minna frá ykkar heittelskuðu Grýlu ***

   4 comments

Anna
December 5, 2006   07:07 PM PST
 
Gangi þér vel í prófinu dúllan mín!!!Las færsluna fyrrr í dag og er auðvitað komin með ídýfu og saltstangir :0/ ótrúlegt hvað maður er áhrifagjarn........

Knús og góðir straumar
Anna Bj.
Kiðlingurinn
December 6, 2006   09:14 AM PST
 
Jæja nú situr þú í þroskaprófi í þessum töluðum orðum. Ég hugsa vel til þín og sendi þér djúpa Vygotski, Piaget og Freud strauma. Veit þú stendur þig með prýði og átt eftir að vera dofin í heilabúinu seinna í dag. Ég er afar stolt af þér að lifa þetta af. Fá próf eru verri en þetta.

Knús og klemm og til hamingju með að vera búin með þroskasálfræðina... :-D
Liljan
December 6, 2006   02:17 PM PST
 
Já svei mér þá held að straumarnir hafi hjálpað til - fannst mér allavega ekki ganga neitt hræðilega... en það eru líklega 6 vikur í dómsúrskurð í þessu máli =O)
Gunnsó
December 6, 2006   05:31 PM PST
 
STENDUR ,STENDUR, STENDUR
úr því þig dreymdi þroskaða karmenn þá hlýtur þú að hafa STAÐIÐ þetta væna mín og það með fullri reisn eins og allt annað sem þú tekur þér fyrir hendur :)

Leave a Comment:

Name


Homepage (optional)


Comments