Entry: full monty Wednesday, December 06, 2006



Svaðalega sem var gott að fara út að borða í hádeginu með frænda eftir prófpúlið - af því er helst að segja að ég tel að ég hafi náð að klóra mig út úr prófinu. Það gildir reyndar ekki 100% þannig að einkunnin í skýrslugerðinni á athugun á barni þarf líka að koma vel út =O)

Það er nú bara nokkuð notaleg tilfinning að vera búin að ná 4 fögum af 5 (vona það allavega) - ekki hefði mig grunað það þegar ég settist á skólabekk í haust með allt niðrum mig (segi nú bara svona) ónei var nú bara ákveðin að gera mitt besta og ekki vera miður mín þó ég myndi hætta - eitt próf eftir og eitt verkefni - þá er þessu misseri lokið.

Kommentin í sumum færslum detta inn og út - er draugur á síðunni minni - eða striðnispúki kannski bara?? ja maður spyr sig.

Ég og stubbarnir versluðum okkur jólajóla í dag, settum upp ljós hjá þeim og bökuðum saman, leyfði þeim reyndar að gera allt sjálfum (var með tilbúið deig) og það gekk bara vel, fyrir utan hvað eldhúsið var gífurlega snyrtilegt... mammsa og pabbi kíktu á litlu dóttur sína í kvöld og komu færandi hendi eins og vanalega.

Maron er búinn að vera með einhver ónot í mallakút, það er þessi skemmtilega magapest sem er að ganga hér í austur sýslunni - Ægir er sprækur sem aldrei fyrr og kemur stoltur heim úr skólanum á hverjum degi með eitthvað jólaföndur - svo er hann svo hrikalega duglegur að lesa og reynir að skrifa allt sem honum dettur í hug - fékk þessa setningu frá honum á msn í kvöld: nenirðúaðfaraaðnáípulsuna. Hann var farið að lengja eftir pylsunni sem ég var búin að lofa honum í kvöldmatinn - gerist ekki sætara. Mér finnst ótrúlegt að það skuli í raun bara vanta eitt enn og þ í stað ð í þessa setningu - hann er snillingur eins og mamma sín þessi elska hehe.

Fór nú bara að blogga af því að jólaserían sem ég var byrjuð að setja í stofugluggann dó - jepps og ég er búin að finna hvaða ljós er bilað - líklega framleiðslugalli - allavega eru rafvirkjahæfileikar mínir og verkfæra lager ekki nógu vel búnir til að fikta í þessum seríum sem hanga saman á lyginni að mér finnst - ekki hægt að eiga mikið við það tel ég - svarar ekki kostnaði... enda nýbúin að kaupa hana og fer bara og væli svolítið á morgun - hef svo rosalega gaman að því...


Af því að ég fer bráðum í Zorann þá er nú betra að hafa kort af herlegheitunum =O)

Góðar stundir og fáið ykkur heitt súkkulaði með rjóma og vel skreytta piparköku með, ég ætla að gera það næsta sunnudag... ummmm eftir villibráðajólahlaðborðið sem mér er boðið á í sveitasæluna á laugardaginn... get varla beðið svo gott var það í fyrra.

Hér er smá grín fyrir þá sem eru dúllur í sér og elska mörgæsa skriður =O) MÖRGÆSIN SÆTA  setja nafnið á þeim sem að þér þykir vænst um og bíða svo og sjá, góða skemmtun. LLL

   6 comments

Erla Berglind
December 7, 2006   06:53 AM PST
 
Oh hvað það er gott að heyra að þér gekk vel á þessu prófi. Sjálfri veit ég hreinlega hvernig mér gekk. Ekki illa og ekki vel sennilega.
Hlakka annars voða til að fá þig og mömmu í kaffi í næstu viku.
Ég og Danni erum mikið búin að leika okkur með mörgæsina.
Anna Bj.
December 7, 2006   09:03 AM PST
 
Til lukku með að vera búin með prófið ;)

Fór á Smyrlabjörg síðustu helgi og það er sko engin hætta á að maður komi svangur þaðan ;)

Knús knús Annsla pannsla
Björg
December 8, 2006   08:35 AM PST
 
Auðvitað getur þú allt litli snillingur..... en ég er nú farin að efast um rafvirkjann í þér, eftir að ég sá þarna slökkvarann hjá þér. Hmmm!!!
Liljan
December 8, 2006   09:33 AM PST
 
Hehe það á sína útskýringu... (ert eins og Erla=O) ) ég ætla að fá mér dimmer þarna... en hef ekki komið því í verk að panta hann og ef ég set lokið á þá geri ég það ALDREI - er sko mega busy kerla þessa dagana hehe. Ég myndi frekar skella skuldinni á málarann með þessa sköllóttu rofa, rafivirkinn skyldi allar leiðslur eftir úti eða inni í dósum án þess að verja vírana... sem mér fannst frekar spes, (það var ekki Jói frændi) það er önnur saga.
Lilja rafvirki og málari með meiru =O)
Liljan
December 8, 2006   04:25 PM PST
 
Hvaða slökkvara varstu annars að tala um BéEff =O)
yourshop.cc
December 4, 2008   07:34 AM PST
 
http://www.watchesforsale.us

Leave a Comment:

Name


Homepage (optional)


Comments