Entry: Morgunógleði!! Friday, December 08, 2006



Já svei mér þá, það munaði minnstu að ég myndi æla í morgun þegar ég renndi yfir fréttirnar á mbl.is - hvað á að gera við svona mannskepnur?? Á ekki orð til að lýsa þessu fyrirbæri. KÆRÐUR Á NÝ FYRIR NAUÐGUN

Er að smíða þessa dagana - eða byrjaði aðeins í gær. Þessar smíðar eru úr orðum og ætlaðar til svars í prófi í mál og ritþjálfun á mánudagsmorgun. Það er nú ein geggjunin - hvernig fer manneskja eins og ég, sem hef pikkað á tölvu í mörg ár, að því að pára 10 bls. á 2 klst. Það verður fróðlegt að lesa - ef hægt verður að lesa það - skrifa nefnilega ekki mjög smekklega og alls ekki þegar ég er að flýta mér - vona að Gsæm og félagar þurfi ekki að sjá þann ófögnuð.

Rakst annars á ótrúlega flottan kveðskap í gærkvöldi - er að hugsa um að leyfa ykkur að njóta með mér - ég er svo mikið fyrir það. Megið líka giska á hvað þessi gífurlega flotta tækni heitir =O)

Drósir ganga, dreyrinn niðar,
drjúpa skúrir.
Rósir anga, reyrinn iðar,
rjúpa kúrir.
           Jóhannes úr Kötlum.

Brakar rekkja, krakkar kurra.
krjúpa sveinar.
Rakar ekkja, rakkar urra,
rjúpa veinar.
            Baldur Hafstað.

Fyrst ég er byrjuð þá er hér ein í viðbót sem ég las fyrir Maron í gærkvöldi þegar við vorum að kúra yfir lærdómnum mínum og rifja upp tröllasýninguna sem var hjá 4.E í gær. Honum fannst hún algjör snilld og skyldi hana vel, ætlaði með hana í skólann og setja upp á vegg =O)

Markvissast, mundi ég segja,
er menntaþorstanum svalað.
ef krakkakvikindin þegja,
svo kennarinn geti talað.
            Jón Thor Haraldsson.

Þeir (kennararnir) þurfa nú ekki að hafa áhyggjur af þessu í fjarnáminu hehe.

Þar sem ég var nær búin að keyra á ljósastaur þegar ég heyrði um skýstrokkinn í London, svipað og Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur og veðurdellukarl, þá fór ég að grúska aðeins á síðunni hans - sem ég skoða stundum til að stytta mér aldur, var nokkuð viss um að hann þyrfti að tjá sig um þann strokk. Rakst þar á fróðlega lesningu um afleiðingar Móðuharðindanna 1783 á veðurfar. HÉR MÁ LESA ÞANN FRÓÐLEIKSMOLA.

Bezt að hætta þessu pikki í bili og fara að snúa sér að lærdómnum, slangur, slettur og Marðar stafsetning uppi á borðum í dag - yndisleg blanda sem getur ekki annað en svæft mig... zzzZZZZzzzZZZZ er svakalega geispuð reyndar, ég bara get ekki farið að sofa á skikkanlegum tíma - uss þetta er alls ekki sniðugt til lengdar.
Knús til ykkar sem hafið gaman að kveðskap og bulli hehe. ***

   13 comments

Björg
December 8, 2006   03:21 PM PST
 
Ertu oft að stytta þér aldur á netinu sæta mín??? Eða stundir.... ja maður spyr sig..
siggi
December 8, 2006   06:23 PM PST
 
Þó langt sé um liðið síðan ég var í íslensku myndi ég giska á að fyrri tvær vísurnar væru ortar í braghætti sem heitir Alrímað.
Síðasta vísan er svo ferskeytla og ef við gerum bragð út henni væri hún svona.

Markvissast, mundi ég segja,
er menntaþorstanum svalað.
Ef kennarinn kynni að þegja,
svo krakkarnir gætu talað. :-)
siggi
December 8, 2006   06:33 PM PST
 
Og BF, allt sem þú gerir styttir þér aldur, það er að segja, þó að þú sért náttúrulega ávallt ung og falleg, þá styttist með hverri mínútu tíminn sem þú átt eftir um eina mínútu.

Sem sagt, tíminn styttir þér aldur og lengir úm leið :-)

Hehehe.... Kv SÓ
Erla Berglind
December 8, 2006   09:33 PM PST
 
Þú hefur aldeilis fengið mikið út úr að lesa grein Sveinbjargar - Sú rödd var svo fögur. GSæm væri nú ánægður með þig vissi hann af þessu litla vísna bloggi þínu.
Liljan
December 9, 2006   12:59 AM PST
 
Já ég var nær heppin að fá það ekki hehe. Já þessir litlu kveðlingar vöktu athygli mína svo um munaði.

Og Siggi, hættu nú að daðra á minni síðu, þú átt síðu sem þú getur notað til að kveða ljóð til fallegra fljóða. Annað svar þitt reyndist ekki rétt - því miður. En ferskeytlan er flott =O) herra kennari.
siggi
December 9, 2006   03:27 PM PST
 
hummm, ekki Alrím?
Ef ég man þetta rétt þá er það Alrím þegar öll orðin í fyrstu tveimur línunum ríma við orðin í tveimur seinni.
Gæti þetta þá verið Oddhenda en þar kemur innrím líka við sögu en ekki eins afgerandi.

Og það er ekki daður þó að ég segi BF sannleikann. Ég hef alltaf verið hreinskilinn við hana eins og frægt er orðið :-)
Liljan
December 9, 2006   03:42 PM PST
 
Svar óskast eða??

Þessi aðferð lýsir sér svo: Til að fá fram seinni hluta vísunnar er fremsti stafurinn í hverju orði í fyrri hlutanum tekinn burt. Svaraðu nú =O)

Svakalega er ég að verða svöng í kengúrukjöt, rúdolf og gæs... ummmm
Anna Bj
December 11, 2006   07:54 PM PST
 
hey er sko búin að refresha nokkrum sinnum þar sem ég var viss um að hér væri pistill um "jólafrí frá skóla" :) er það ekki annars komið...... :/

Knús Anna
Liljan
December 12, 2006   09:24 AM PST
 
Júbbs eða þannig - á eftir að halda eina 12 mínútna ræðu um gagnsemi tjáningar... á sem sagt eftir að semja ræðu og tala við sjálfa mig í webcam og senda stinugus =O) er ekki að nenna því, annars bara sæla. Dekur í dag og stefni á vínklúbb í kvöld =)
Kiðlingur
December 16, 2006   11:20 PM PST
 
Ég sit hér mér til aldurstyttingar og velti fyrir mér leyndardómi morgun dagsins. Úff! Fæ kvíðakast við tilhugsunina...

Á morgun gerist það!!!!!!!

Leyndarmálið sem ekki má tala um.... fyrr en annað kvöld.

Allir sem vita leyndarmálið vita að þú hefur endanlega misst vitið... já eða það litla vit sem þú áttir eftir.

Jeremías, er þetta uppreisn? Að detta svona vitleysu í hug og láta leiða sig inn í slíkan lífstíl. Ekki kenna mér um.... ég hafði engin áhrif og mun ekki sætta mig við neina ábyrgð sem þú kannt að pota og ota að mér. Þitt var valið og lífstíllinn er þinn.

Breytingin er mikil og ég vona að þú finnir hamingjuna í þessu nýja hlutverki.... sem mun án efa reyna á allar þínar taugar og heilbrigða skynsemi.

Good luck mín kæra....! Þú þarft á því að halda...næstu vikurnar, mánuðina, já og árin!

Hlakka til að sjá næsta blogg...
Kvíði því líka pínu fyrir því... hehehe!

Ps... sendi til þín smá pakka til hjálpar á þessum erfiðu tímum framundan!
Kiðlingur
December 16, 2006   11:29 PM PST
 
Ps. Tobbi Þórðar rokkkkkkar að mínu mati. Ég fíla það alveg í botn hvernig hann lætur þá heyra það í "Einum bent - öðrum kennt"...ha ha ha. Tekur þá sko alveg í rass. Ekki sofna...lesa bara aftur og aftur og aftur og aftur....nokkuð vel útfærðar og skemmtilega heimspekilegar ádeilur. Þú myndir njóta ef þú hefðir tíma, orku og ööööö....life!
Kiðlingur
December 18, 2006   09:19 AM PST
 
Jæja er ekki leyndarmálið orðið opinbert.... ég er að deyja eftir fréttum!!!!
Björg
December 22, 2006   12:53 PM PST
 
Þetta daður fór nú alveg framhjá mér fyrr en núna. En maður er svo sem orðin vanur... allir alltaf að daðra við mann allsstaðar. Hehehe!!!

Leave a Comment:

Name


Homepage (optional)


Comments