|
Ohhh er komin í jólafrí - frá skólanum í það minnsta. Tók síðasta próf 11. desember og var að klára síðustu ræðuna í þjáningu - er með hæsi, hor og særindi í hálsi þannig að ég var búin með hálfa whiskey þegar yfir lauk og farin að hiksta meira en ræskja mig hehe. Opnaði sem sagt konfekt kassann minn áðan og fékk mér uppáhaldmolann og einn maltbjór með - fullkomið. Laufabrauðsbakstur á morgun og afmæli hjá stóra barninu mínu á fimmtudag - ætla að reyna að koma jólakortum í póst á milli þess arna... hef aldrei verið svona sein með allt og allt - en skólinn og annað gengur fyrir þannig að... Ég og mamma skruppum í borgina - kíktum í nokkrar búðir og fylltum eitt stykki jeppa... engar ýkjur sko - fékk martröð aðfaranótt sunnudags yfir hrúgunni í bílnum, vaknaði snemma skúraði okkur út og endurhlóð bílinn, jeremías. Mamma bætti um betur eftir endurhleðsluna... jamms sængur, koddar og arinn - segi það satt. Bleijupartýið hjá mér og mömmu á laugardagskvöldið var alveg að slá í gegn - það sem hægt er að hlægja að engu og öllu =O) Bjögga frænka kom í teitið og skemmti okkur og við henni. Fór til Reykjavíkur til að næla mér í sérvalið konfekt frá Nóa og síríusi - steingleymdi því en kom heim í staðinn með Lukku. Já ég er endanlega búin að tapa glórunni - hef tekið upp á ýmsu en þetta slær allt út... Lukka er 9 mánaða tík af tegundinni Beagle. Við eigum ágætlega saman, erum báðar frekar og stríðnar =) hún er þó eilítið loðnari en ég (hef þó oft verið nálægt því að ná svipaðri órækt) og eitt sem hún hefur fram yfir mig líka - það er þefskynið - enda sporhundur, gæti líklega tekið það að mér með smá æfingu. Nú er bara að næla sér í byssuleyfi og fara á refa veiðar =O) ætti það nú bara eftir hehe.
Úff það var leiðinlegt að keyra í Zorann en heimleiðin var sú svakalegasta sem ég hef lent í lengi - það var svo glerhált að við vorum 7,5 tíma á leiðinni heim, vorum á 30 til 80 km hraða alla leiðina - aldrei slíku vant var leiðin Vík - Klaustur best... langt síðan ég hef lent í svona skítafærð segi bara úff aftur. Ég tók fram úr tveimur bílum austan við afleggjarann að Dyrhólaey - uppi á hæðinni - þar voru á ferð þýsk rúgbrauð (húsbílar) okkur mömmu varð á orði að þeir væru pottþétt á sumardekkjum og sú var raunin (frétt af sumar rúgbrauðum) - ég skautaði á 4x4 bíl og nöglum - hefði ekki boðið í að vera á þessum brauðum, það er ekki í lagi með sumt fólk. Eins gott að bleijuteitið var ekki blautt - hefði ekki boðið í að keyra þetta með bjórbragð í munnviki og sára vöðva eftir glasalyftingar... hehe. Ferðin hefði verið fullkomnuð með jólatréi á toppnum á bílnum =O) jæja farin í koju - bjórinn búinn og 1/2 kg af súkkulaði komið á bossann á mér =O) Nóttina frá okkur til þín *** E.s. diskurinn jól og blíða með Baggalút er þvílík snilld - ekki láta hann framhjá ykkur fara - reddaði eiginlega heimferðarhálkugeðveikinni =O) |
| Kiðlingur December 20, 2006 08:48 AM PST Það var mikið...he he he. Til lukku með Lukku. Las reyndar á linknum hjá þér að ....Beagle væri "kannski ekki heppilegur sem fyrsti hundur." Jæja þar hefur þú það. Alltaf að ráðast á garðinn þar sem hann er hæðstur. Gengur ekki annars vel? | ||
| Anna Bj. December 20, 2006 09:45 AM PST Ertu ekki að djóka :) Var búin að láta mér detta "dýr" í hug í forvitni minni en var fljót að leiða hugann frá því -hefði frekra haldið HAMSTUR þá en ekki HUNDUR ;) En allavega ertu þá komin með dyravörð :) | ||
| Peace December 22, 2006 10:34 AM PST Innilega til lukku með hana Lukku! jólakveðja | ||
| Björg December 22, 2006 12:48 PM PST Þú ert skrýtin lítil hnáta!! Hehehe!! Til hamingju með lukkuna... vonandi verður allt í lukkunar fínu standi. | ||
| Helga Finnbogadóttir December 23, 2006 01:41 AM PST Sæl frænka, var að vandra hér um á netinu að bíða eftir að sonurinn skilaði sér heim, hann hefur rýmri útivist þar sem við eigum heima svo hátt uppí fjallinu. Datt inn hjá þér, þetta eru svona ljómandi skemmtilegir pistlar, grínlaust ég er búin að lesa þá alla og allir steinsofnaðir í húsinu líka unglingurinn sem var úti. Gaman að heyra að þú sért komin í nám aftur. Til hamingju með drenginn og gleðileg jól öll sömul, kveðja Helga lestrarhestur... | ||
| Leave a Comment: |