|
Úff segi ég nú bara - svakalega er ég hamingjusöm yfir því að hafa verið að vinna en ekki drekka í gær - svo ég tali nú ekki um að skríða inn í stigaganga hjá fólki og sofna þar já eða halda teiti. Verð að segja að jólahlaðborð í gærkvöldi fannst mér ekki gáfulegur leikur, auðvitað er ekki víni haldið að fólki - en margir eru þreyttir - slappa af eftir jólaösina og hvernig endar það - jú allir á hvínandi perunni og rúmlega það - sök sé að unglingarnir sem þurfa bara að hugsa um að sofa, éta, skíta og skeina sig fái sér í glas en... allt fjölskyldufólkið =( Jæja farin í brúsabað - nú ætlum við mamma að halda uppi hefð okkar og fara saman út að borða skötu/tindabykkju í hádeginu... hlakka mikið til og er orðin vel hungruð - sofnaði nú reyndar ekki fyrr en hálf sjö í morgun - enda ball til 0400. Kæstar kveðjur frá mér - enda nývöknuð og dragúldin =O) NOT!!
|
| Kiðlingur December 23, 2006 12:26 PM PST Jæja sæta mín, efast um að allt sé svo miklu ófremdarástandi hjá þér. Setja bara pollíönnugírinn í gang. Jólin koma og fara, það er alveg garanterað. Gleðileg jól alle sammen! | ||
| Broddi December 24, 2006 05:06 PM PST Jolakvedja fra Dk ertu buin ad fa ter hund¨.........hafid tad gott um jolin .........knuss | ||
| Leave a Comment: |